Það er leikur að smíða leikfang. Smíðaðu þinn eiginn leikfangabíl.



HP GRETTIR-01.

 

Grettir er sterkur leikfangavörubíll  með sturtumöguleika á palli. Grettir er að mestu úr krossviði og áli. Hann er dreginn áfram með sterkum nælontaumi sem festur er við lítið kefli úr áli og gúmmí. Við bílinn er taumurinn festur á tveim stöðum við snúningsplötu framöxuls þannig að hægt er að beygja bílnum til beggja hliða. Framöxull hefur mikið fjöðrunarsvið ólíkt öðrum útileikföngum af svipaðri gerð.

 

            Afturöxull er einnig með mikla fjöðrun, en af annari gerð en að framan og enn öðruvísi og sterkari en á HP Spora-01. Öxlar eru úr stáli. Felgur eru sérsmíðaðar álfelgur með innbyggðum kúlulegum. Vegna mikils kostnaðar við álfelgurnar var gerð tilraun með að renna  felgur úr birkivið með innbyggðum legum og reyndust þær vel. Loftfyllt gúmmídekk í stærðinni “6 x 4” eru fengin úr miklu vöruúrvali dekkja fyrir fjarstýrða bíla í mælikvarðanum 1:8. Tvö sæti eru í stýrishúsinu og má koma þar fyrir litlum dúkkum, max h=15cm.

 

            Væntanlegt er teiknisett fyrir HP Gretti-01, sem mun sýna mest allan bílinn úr áli eins og HP Spori-01.

 

 

Stærð Grettis-01 er: L=63,0 B=39,0 H=37cm.

 

Þyngd: = 9.2 kg.

 

 

Teiknisett fyrir lausan flutningakassa með hurð að aftan, sem passar ofan á pallinn verður væntanlega fáanlegt í oktober ‘08.

 

Teiknisett fyrir Campinghús ofan á grind Grettis verður einnig fáanlegt seint á þessu.

 

Kaupa teikningasett.

Hphönnun / Teiknistofa Helga K. Pálssonar • Álfaskeiđ 93 • 220 Hafnafjörđur • hpalsson@centrum.is • Sími/Tel. +354 555 2235 • kt: 191250-4009 • VSK: 5088
© 2008 Uppsetning og hönnun Hýsir.is